Alltaf eitthvað að gerast.....

11.02.2007 20:07:36 / runarb

Ný vinnuvika framundan.....

Þá er komið að því!! ný vinnuvika framundan og helgin liðin. Þessi helgi var bara mjög fín hjá mér og family-uni :) Það var margt sem var tekið sér fyrir hendur þessa helgina ég fór með stjórnini hjá Ísl. félaginu til Odensea að sjá um blótið hjá þeim því þeir koma svo til okkar næstu helgi þegar við höldum okkar blót. Það var mjög gaman að og fólkið var mjög hresst og skemmtilegt sem mætti á blótið. En eitt var nú fyndið að ég hitti einn gamlan vinnufélaga sem var að vinna með mér á Skuggabar um árið og höfðum við ekki hist síðan við ættum þar! og var ekkert smá gaman að hitta hann og ég fór að spyrja hann hvað hann væri að gera hérna í Danmörku og hvað haldið þið ekki að hann sé að læra það sama og ég þ.e. Markaðsfræði bara í Odensea eða í bæ fyrir utan Odensea! og er einmitt á svipuð reiki og ég að fara að klára þetta á þessu ári! ekki grunaði mig það að ég myndi hitta hann í Danmörku og hvað þá að hann væri að læra sama nám og ég!! þetta var mjög fyndið og var líka skálað í Backardi lemon í því tilefni :D En eins og ég sagði þá gekk þetta blót alveg áfallalaust fyrir sig og meira að segja var einn gaur þarna sem var hreinlega á eyrunum! hann gekk hreinlega á hlið!! og það var ekkert smá fyndið að spjalla við hann því ég bað hann um að kíkja aðeins út fyrir og fá sér fersk loft sem hann afþakkaði og sagði mér að hann væri alltaf svona og ég gæti alveg treyst honum að hann myndi ekkert gera af sér!! en þá fór ég hugsa heyrðu ef hann skyldi nú labba þarna um og detta!! ég sagði þetta við hann og þá var minn með orðinn á reiðum höndum: "þetta er allt í lagi karlinn ég er gamall hjólabretta strákur og ég kann svo að láta mig detta" nokkuð gott svar hjá karlinum :D

Eins og þið kannskið flest hafið rekið augun í þá erum við familyan búin að ákveða það að skella okkur á klakann í sumar og fara að vinna og hitta ættingja og fara í brúðkaup og alles :) mikil tilhlökkun hérna á bænum við því öllu saman, Hilmir Snær getur ekki hætt að tala um þessa blessuðu ferðatillögu sína þ.e. við förum á lestastöðina svo í lestina svo á lestastöðina og svo í flugstöðina og svo bíðum við og svo förum við í flugvélina og svo komu við til Íslands og þá verðum við keyrð í Rauða húsið jibbbíí :) hann er svo mikið krútt þessi elska að það er bara æðislegt.

Heyrðu já það var nú ekki amalegt að við endum þessa liðnu helgi á því að okkur var boðið í mat til Bjögga og Ástu. Renata og Kiddi mættu líka með dúlluna sína og fengum við hamborgarahrygg sem smakkaðist ekkert smá vel og svo klikkaði nú ekki súkkulaðikakan sem Renata/Kiddi bökuðu og komu með í eftirrétt nammi namm takk alveg kærlega fyrir okkur.

Ég er nú reyndar búinn að vera eitthvað hálf slappur núna um helgina búinn að vera með beinverki og slæma verki í hálsinum :( ekki gaman það en ég á svo yndislega eiginkonu sem vekur mann á morgnana um helgar með Ameriskarpönnukökur og ískalda mjólk nammi namm ekki amalegt það að fá svona þjónustu "þú ert bestust love" 8)

Þetta er orðið gott hjá mér vonandi verður komandi vinnuvika æðisleg :)

peace out....

Fanney skrifaði
Takk ástin mín. Þú ert líka æði. Það var yndislegt að koma heim úr skólanum á föstudaginn og minn bara búina að þrífa allt húsið. Þú er lllllllllang bestur :-) Love Fanney
Rúnar skrifaði
Takk fyrir það love, ég reyni að gera mitt besta :) peace out
renata skrifaði
hehe var þessi fulli maður nokkuð bjöggi? hehehe nei nei segji bara svona:) En ja þetta var æðislegt kvöld og eg er alveg PAKKSÖDD!! við ætlum svo bráðlega að fara að bjóða ykkur öllum aftur i mat þvi þetta er alltaf svo gaman:) samt ekki alveg strax maður verður alveg saddur næstu vikurnar eftir þennan ljúffenga hamborgarahrygg hennar ástu:) en við heyrumst...kv.renata
Fanney skrifaði
Love you :) Knus Fanney

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

ST�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1093 dögum