Alltaf eitthvað að gerast.....

24.05.2007 19:38:01 / runarb

Ég er fluttur -----------> blog.central.is/m22

Sæl verið þið0 Vildi bara láta ykkur vita að ég er hættur með þessa síðu0 Þið getið alveg verið róleg við hjónin erum búin að stofa nýtt blogg sem er blog.central.is/m22. Þið getið fylgst með okkur þar. Endilega verið dugleg að kíkja á okkur.

Over and out from this side :lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 10:07:27 / runarb

"Lítil þekking er hættulegt verkfæri"!!

Svona hljóðaði málhátturinn sem ég fékk eftir að ég var búinn að borða páskamatinn sem að þessu sinni var hangikjöt og uppstúf að hætti ömmu Fanney. 

 

En jæja mér finnst kominn tími á nýtt blogg frá gamalmenninu J En já eins og þið hafið rekist á þá varð ég 30 ára 29. mars síðast liðinn og hef ég ekkert bloggað síðan!! Púff en svona er þetta! Það er samt sem áður búið að vera nóg að gera eins og yfirskrift bloggsíðunar ber með sér.

 

Við hjónin buðum í smá dinner á afmælisdeginum mínu og komu 13 manns J og var mikið hlegið og borðað en við hjónin þökkum kærlega fyrir okkur og þær gjafir sem við fengum!! Takk takk

 

Núna eru páskarnir að fara að taka enda og eru þeir búnir að vera alveg æði hreint út sagt!! Við erum búin að vera með gesti hjá okkur frá því á mánudaginn 2. apríl en amma og afi Fanneyjar sem og frændi hennar, kærasta hans og dóttir hennar eru búin að vera hjá okkur. Þessi vanalegi túristahringur hefur verið farinn með þau þ.e. Þýskaland, Árósar, Legoland og svo endað á Dýragarðinum í Odense sem sagt búið að vera nóg að gera en ég fór nú ekki allt þetta því ég er búinn að vera að vinna aðeins í lokaverkefninu mínu sem mér finnst vera svolítið strembið þessa stundina karlinn eitthvað tómur þessa dagana veit ekki hvort að það sé aldurinn eða kannski málshátturinn eigi eitthvað við rök að styðjast J hehe

 

Núna er búið að ákveða það að við feðgarnir erum á leiðinni til Íslands þann 9. júní með Norrænu og áæltaður komu tími er 12. júní á Seyðisfjörð og hlakka ég ekkert sérstaklega fyrir þessari ferð þar sem ég frekar sjóveik týpa J en vonandi að það verði gott í sjóinn þann tíma sem þetta tekur svo strákurinn missi ekki álit á pabbanum! Við ákváðum að taka bílinn með til Íslands og selja hann því við erum búin að vera með hann á íslenskum númerum allan þennan tíma sem við erum búin vera hérna úti og erum kominn yfir þann tíma sem má vera á erlendum númerum svo þetta er besta lausnin! Svo verður bara verslaður danskur bíll þegar við komum til baka.

 

Þessi dagur í dag (09.04.2007) er svolítið sérstakur því í dag á litla systir afmæli hún Viktoría en hún er orðinn 10 ára sem sagt 20 ára á milli okkar systkynja Til hamingju með daginn sæta!! Það verður víst lítið um veislur á þeim bænum því þau eru að fara í fermingu einmitt á sama tíma J það er víst ekki hægt að gera allt.

 

Svo styttist í það að konan fari til Íslands en hún ætlar að fara í fermingu til systur sinnar hennar Öldu á sumardaginn fyrsta og verðum við þá feðgarnir tveir eftir í kotinu :) þetta er nú bara stutt ferð hjá henni.

 

Over and out...

 

p.s. Ég þakka kærlega fyrir allar afmæliskveðjurnar sem komu inná síðustu færslu J alveg ólíklegasta fólk skrifaði inn afmæliskveðju takk takk!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 04:51:19 / runarb

Jeg har en fødselsdag i dag!

I dag er det Rúnar fødselsdag!
Hurra! Hurra! Hurra!
Han sikkert sig en gave får
som han har ønsket sig i år
og dejlig chokolade med kage til.

Hvor smiler han, hvor er han glad
Hurra! Hurra! Hurra!
Men denne dag er også rar,
for hjemme venter mor og far
med dejlig chokolade med kage til.

Og når han hjem fra skolen går,
Hurra! Hurra! Hurra!
Så skal han hjem og holde fest,
og hvem der kommer med som gæst,
får dejlig chokolade med kage til.

Til slut vi råber højt i kor.
Hurra! Hurra! Hurra!
Gid Rúnar længe leve må
og sine ønsker opfyldt få -
og dejlig chokolade med kage til.

Jæja þá er karlinn orðinn 30 ára!!! Púff og eins og fólk flest myndi segja kominn á fertugsaldurinn J en svona er þetta bara maður verður bara að taka þessu með jafnaðar ró og líta fram á veginn og njóta framtíðarinnar sem er bara björt! Núna erum við bæði hjónin komin á þennan aldur og get ég núna ekki mikið skotið á konuna J hehe er búinn samt að njóta þess 16 daga!

Ég er farinn að sjá gráu hárin spretta á hausnum á mér eitt og eitt! En svona er þetta bara þegar aldurinn færist yfir!

Eins og hægt er að lesa um í síðustu færslu þá héldum við hjónin uppá afmælin okkar saman og komu allir okkar vinir í þá veislu sem var bara snilld og ætlum við að halda smá grillveislu fyrir ættingjan okkar hérna í DK á morgun sem ég reikna með að verði ekkert síðri en veislan síðustu helgi J

 

Over and out (old man)


» 13 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 09:45:24 / runarb

Takk ÆÐISLEGA fyrir okkur!!

Já takk fyrir okkur á föstudaginn síðast liðinn!! þetta var ekkert smá gaman!! 50 mannaveisla í mosaíbúðinni hjá Ástu og Bjögga heppnaðist alveg stórkostlega og að mér skilst þá fóru allir vel við skál frá veislunni sem tók enda undir morgun :lol: þvílíka þolið!

Núna sit ég hérna og pikka inn á tölvuna hálf sljór ennþá eftir helgina!! púff er maður orðinn gamall eða hvað!! maður ræður ekki einu sinni við að skemmta sér tvo daga í röð lengur án þessa að mánudagurinn fái að kenna á því! ekki gaman það en kaffið er besti vinurinn núna :|
En já ég vildi bara koma fram þakklæti okkar til ykkar sem sáu sig fært að mæta í veilsuna til okkar á föstudaginn síðastliðinn og einnig fyrir allar þessar líka flottu gjafir sem okkur voru gefnar að tilefni 60 ára afmæli okkar hjóna :lol: Vonandi að fólk hafi skemmt sér því við hjónin skemmtum okkur alveg Konuglega og ekki skemmdi fyrir þessi ræðuhöld frá vinunum, gítarleikurinn hjá Stjána og Bjögga og ekki má gleyma SingStar sem skipaði veglegan sess í veislunni.

En enn og aftur TAKK FYRIR OKKUR!!

over and out


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 21:44:52 / runarb

Það styttist í stóra daginn!!

Jæja gott fólk þá styttist í stóra daginn hjá okkur hjónum en núna á föstudaginn verður bara gaman!! fólk er meira að segja að koma frá útlöndum til að vera viðstatt þessa miklu veislu :) og er það ekkert smá mikil virðing að fólk skuli leggja þetta á sig fyrir okkur :) En já við hjónin erum að fara að hald uppá 60 ára afmæli okkar eða 52 eins og Fanney vill kalla það (ég 30 ára en hún 22 ára)!!
Við erum búin að birgja okkur upp af veigum og þess hátta og er reikna með um 50 manns í þessa miklu veislu svo þetta verður bara gaman og vonandi að sem flestir geti séð sér fært að mæta!!

Annars er allt gott að frétta skólinn gengur bara sinn vana gang og var ég að fá til baka "project description" frá supervisiorinum mínum þar sem ég fékk að vita það að allt væri á réttri leið og ætti bara að halda áfram á þessari braut og næst á dagskrá er að gera lista yfir contents í projectinu og svo líka að hanna outline fyrir field research jebb fyrir þá sem ekki vita þá er það svona undirbúningur í kringum spurningarlista og þess háttar!! spennandi ekki satt :) hehe

Strákurinn er aftur farinn að stunda leikskólann eftir nokkra fjarveru sökum þess að hann er bara að drepast í hægra eyranum og lætur hann eins og Duii í Somthing about Mary það má ekki koma við eyrað á honum þá trillist hann og ræðst bara á mann og lemur mann!! Svo er konan bara að gera góða hluti í skólanum hjá sér var að fá verkefni þar sem hún hafði gert allt rétt "alger snillingur hér á ferð" ekkert smá stoltur af konunni... svo er nóg að gera hjá henni að hanna og bæta allt í kringum veisluna miklu, ég er hinsvegar bara til hliðar í þessu vill ekkert vera að þvælast fyrir (þið skiljið þetta strákar :) ).

Held að þetta sé orðið gott, ég óska bara ferðalöngunum sem er að koma góðrar ferðar og sé ég ykkur á fimmtudaginn og föstudaginn :)

over and out!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 20:45:13 / runarb

Jebb ný færsla frá Karlinum!!

Jæja er ekki komið á nýtt blogg frá karlinum!!humm já svona er þetta maður ætlar alltaf að vera svo duglegur að taka sig á við að blogga og svo fellur maður allaf í sömu grifju þ.e. þennan marg nefnda kóngulóarvef (a la Einar 8))

Það er svo sem ekki mikið að frétta af karlinum annað en að skólinn gengur sinn vana gang og jú það komið á hreint að ég verð að vinna hjá frænda hennar Fanneyjar honum Hannesi við að reisa sumarbústaði sem hann er búinn að festa kaupa á og er ég einmitt að skrifa lokaritgerðina mína í kringum það ferli sem er mjög áhugasamt og gaman að fylgjast með því!

 

Erla lilla syss kom í heimsókn hingað út og var hérna hjá okkur fjölskyldunni á M22 í 6 daga hérna hjá okkur og kom hún með kærastan sinn hann Ástþór og það var mjög fínt að fá þau og þau voru bara klesst saman allan tíman ekkert smá æðislegt að sjá þau hvað þau eru ástafanginn þessar turtildúfur :)við gerðum margt saman eins og að borða góðan mat, spila, xxxxxx áxxxxx og margt annað. Hilmir Snær tuskaði þau alveg fram og til baka þau fengu varla að fara á klósettið fyrir honum því þau áttu að leika við hann 24/7 :)

 

Nú fer að styttast í stór afmæli okkar hjóna en það er komin dagsetning á það þ.e. 23. mars og erum við alltaf jafn heppin við hjónin að það er svaka fest í skólanum mínum sama dag og verður því kannski erfitt að fá fólk í afmælið okkar en að sjálfsögðu mætir fólk í afmælið okkar í stað þessa að fara í festið í skólanum ekki að spyrja að því sem og koma nokkrir mjög góðir vinir frá Íslandi til að heiðara okkur með nærveru sinni sem er bara snilld og mikil tilhlökkun að fá þau.

 

Þetta er orðið gott þarf að fara að sinna stráknum sem er jú búinn að vera með hlaupabóluna síðan á fimmtudaginn og einnig er greyið að búin að vera með i eyrunum í nokkurn tíma :(já heyðu annað líka konan er að verða 22ja á morgun :)og ætla ég að fara að míkja hana aðeins upp fyrir þennan merkis dag á morgun með smá nuddi :lol:

 

Over and out....


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 07:55:21 / runarb

Snjórinn enn til staðar!

Jæja þessi blessaði snjór er ennþá hérna hjá okkur í DK en það er farið að minnka mjög mikið samt :) ánægður með það. Það er nú lítið að frétta. Er að fara í skólann í dag þ.e. Sales and E-business sem eru að mér finnst bara allt í lagi!! en ég var nú samt að kíka aðeins á youtube áðan og lenti þá á alveg brilliant gaur! gaur sem er alger amature á hljóðfæri en er flinkur að video-editera og er afraksturinn bara snilld, kíkið á það hérna.

Svo eru bara að verða búnir 2 mánuðir af árinu 2007 ekkert smá fljótt að líða og styttist í það að karlinn verði kominn á þrítugs aldurinn 8) mér finnst ég bara vera eins og rauðvínið verð betri því eldri sem ég verð 8)

Bið að heilsa og já, finnst fólk eitthvað hálf slappt við að commenta hjá mér :S en það er nú ekki neitt issue að commenta en bara gaman að fá smá kveðjur af og til sakar ekki :lol:

over and out


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 16:25:04 / runarb

Snjórinn kominn til DK

Jæja þá er snjórinn kominn til DK og hann bara hættir ekkert að kyngja niður!! þetta er nú meira og allir fastir útum allt, konan ekki búin að komast í skólann í tvo daga!! meira vesenið hérna en þeir segja að snjórinn muni stoppa stutt við og á hann að vera farinn á sunnudaginn samkvæmt Jyllandposten. Vonandi að það stemmi hjá þeim því ég bara HATA snjó hann á bara að vera uppí fjöllum og þar sem engin fjöll eru hérna í DK þá á bara ekki að koma neinn snjór :D og hana nú!!! Ætla ekki að hafa þetta lengra í dag þar sem að það er að koma helgi!

Over and out

p.s. einn brandari hérna svona í tilefni föstudagsins sem og tilþrifana hjá markmanninum hjá Barcelona á miðvikudaginn.. klikkið hérna.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 20:52:33 / runarb

Meistara kokkur :)

Haldið þið ekki að karlinn hafi ekki bara eldað í kvöld! og ekkert smá flottur á því! ég eldaði fyrir okkur feðgana þessar líka dýrindis Kindabjúgur nammi namm og með uppstúfi og alles. Ekkert smá gott en ég var nú ekkert alltaf hress með strákinn því hann vildi bara borða bjúguna en ekki uppstúfið sem ég er ekkert smá hreikinn af að hafa gert :D þó ég segi sjálfur frá!! Ég fékk að elda í kvöld því konan var að fara í einhvern kvennaklúbbinn sem hún er í og áttum við feðgarnir að redda okkur sem og við auðvitað gerðum en ekki hvað 8) jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili en já meðan ég man þá er ég búinn að horfa á 17 þáttinn af Prison og þvílíka spennan sem er núna orðinn í þessum þætti!! mæli með þessum framhaldsþætti :)

Over and out


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 09:00:10 / runarb

Framlag Íslands til Eurovision 2007!!

Æj!! ég veit ekki er þetta þess virði að taka þátt í þessu þetta árið? verið að senda útbrunnin rokkara til að reyna að kom okkur uppúr forkeppninni þetta árið? Ég hreinlega veit ekki og satt best að segja voru öll lögin þetta árið grátleg og því kannski þetta skársta lagið!! Mér sýnist samt eins og Danir ætli að taka "Sylvíu á þetta" þetta árið!! það verður gaman að fylgjast með þessu í maí :lol:

over and out


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 19:18:40 / runarb

Bolla Bolla!!!

Já það var bolludagurinn í gær og ætlaði ég að blogga þá en það gafst því miður ekki mikill tími til þess :S svo ég blogga bara í dag sprengjudag en það var nú ekki saltkjöt og baunir hérna hjá okkur í dag þó svo að við fengum okkur bollur í gær jebb við (ég) bakaði vatnsdeigsbollur sem er eitt af því eina sem ég kann að baka ásamt bananabrauði :lol: það var bara súpa og brauð í matinn í kvöld sem jú alveg rétt er frekar erftitt að sprengja sig á svo það verður bara bíða þanngað til næst :lol:

En ég skellti mér á Þorrablót Íslendingafélagsins ásamt eiginkonunni og þeim Jóhönnu og Hjalta sem komu frá Odense til að vera viðstödd þennan merka viðburð sem Þorrablótið er!! Þetta blót var bara snilld og ég endurtek bara Snilld!! þvílíka skemmtunin og skemmtiatriðin ekki af verri endanum skal ég segja ykkur. Við hjónin komust í þennan fræga annál hjá Ísl. félaginu ég fyrir það að mæta aðeins ofseint á klakamótið og konan fyrir að vera svona mikil GOLDEN girl að þjófarnir bara reikna hana út að hún sé moldrík kona sem hún er jú reyndar að eiga mig sem Eignmann :D Ég lét slag standa og fékk mér allan pakkan sem var í boði á hlaðborðinu og fannst þetta bara nokkuð gott þ.e. hrútspungar, sviðasulta, þorrabaggi og hvað þetta nú allt heitir nammi namm :) og svo var þetta toppað með SS pylsum í enda kvölds sem endaði hjá mér kl. 4:20 en hjá konunni aðeins fyrr 8|

Ég skellti mér á fótbolta æfingu með skólaliði Vitusberings í gærkvöldi ásamt nokkrum öðrum íslendingum og var þetta bara snilld að fá að hlaupa aðeins og ég verð bara að segja að ég var farinn hreinlega að sakna harðsperrana ;) svo það var fínt en því miður var danskan eitthvað að hrjá mig og átti ég erfitt með að reyna að biðja um boltan og hvað þá þegar ég var í marki að segja að maður var laus og þess háttar en ég ætla að vera duglegur að mæta á þessar æfingar því ég held að þetta sé gott fyrir karlinn að komast aðeins inní málið!

Svo það sem er að frétta af skólamálum hjá mér er að ég þarf að mæta einu sinni í viku 4 tíma í senn í Sales and E-business course og svo fer allt á fullt hjá mér í sambandi við lokaverkefnið mitt í næstu viku sem sagt nóg að gera framundan 8| Held að þetta sé orðið gott!

over and out


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 12:58:11 / runarb

Tveir lasnir heima við!!

Það er nú meira!! Ég hóf þessa viku með bloggi að þetta mun vera spennandi vinnuvika!! ummm ekki er hún búin að vera gæfurík hvorki fyrir mig né Hilmi Snæ því við erum báðir orðnir veikir :( ekki gaman það en ég er með slæmt kvef sem leiðist í augun og verður mikill sviði og tár streyma niður en Hilmir Snær er með skarlatssótt sem lýsir sér þannig að hann er með hita, illt í munninum og svo mikill pirringur!! svo það er nú ekki gaman hjá okkur feðgum þessa dagana!! en vonandi að þetta fari nú að hverfa því ekkert er leiðinlegra en að vera veikur!! En ég komst samt í skólann í gær en ég er einu sinni í viku í skólanum þ.e. 4 tíma í senn að læra um viðskipti á netinu :) mjög svo áhugvert og verður vonandi skemmtilegra en þegar ég tók að mér að fara í Statistics (tölfræði) sem er því miður ekki mín sterkasta hlið!

En jæja strákurinn er farinn að kalla ég læt heyra i mér....

Over and out....

p.s. Nei, Fanney ég ætla ekki að segja þér hvað mamma þín var að segja mér í gær ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 20:07:36 / runarb

Ný vinnuvika framundan.....

Þá er komið að því!! ný vinnuvika framundan og helgin liðin. Þessi helgi var bara mjög fín hjá mér og family-uni :) Það var margt sem var tekið sér fyrir hendur þessa helgina ég fór með stjórnini hjá Ísl. félaginu til Odensea að sjá um blótið hjá þeim því þeir koma svo til okkar næstu helgi þegar við höldum okkar blót. Það var mjög gaman að og fólkið var mjög hresst og skemmtilegt sem mætti á blótið. En eitt var nú fyndið að ég hitti einn gamlan vinnufélaga sem var að vinna með mér á Skuggabar um árið og höfðum við ekki hist síðan við ættum þar! og var ekkert smá gaman að hitta hann og ég fór að spyrja hann hvað hann væri að gera hérna í Danmörku og hvað haldið þið ekki að hann sé að læra það sama og ég þ.e. Markaðsfræði bara í Odensea eða í bæ fyrir utan Odensea! og er einmitt á svipuð reiki og ég að fara að klára þetta á þessu ári! ekki grunaði mig það að ég myndi hitta hann í Danmörku og hvað þá að hann væri að læra sama nám og ég!! þetta var mjög fyndið og var líka skálað í Backardi lemon í því tilefni :D En eins og ég sagði þá gekk þetta blót alveg áfallalaust fyrir sig og meira að segja var einn gaur þarna sem var hreinlega á eyrunum! hann gekk hreinlega á hlið!! og það var ekkert smá fyndið að spjalla við hann því ég bað hann um að kíkja aðeins út fyrir og fá sér fersk loft sem hann afþakkaði og sagði mér að hann væri alltaf svona og ég gæti alveg treyst honum að hann myndi ekkert gera af sér!! en þá fór ég hugsa heyrðu ef hann skyldi nú labba þarna um og detta!! ég sagði þetta við hann og þá var minn með orðinn á reiðum höndum: "þetta er allt í lagi karlinn ég er gamall hjólabretta strákur og ég kann svo að láta mig detta" nokkuð gott svar hjá karlinum :D

Eins og þið kannskið flest hafið rekið augun í þá erum við familyan búin að ákveða það að skella okkur á klakann í sumar og fara að vinna og hitta ættingja og fara í brúðkaup og alles :) mikil tilhlökkun hérna á bænum við því öllu saman, Hilmir Snær getur ekki hætt að tala um þessa blessuðu ferðatillögu sína þ.e. við förum á lestastöðina svo í lestina svo á lestastöðina og svo í flugstöðina og svo bíðum við og svo förum við í flugvélina og svo komu við til Íslands og þá verðum við keyrð í Rauða húsið jibbbíí :) hann er svo mikið krútt þessi elska að það er bara æðislegt.

Heyrðu já það var nú ekki amalegt að við endum þessa liðnu helgi á því að okkur var boðið í mat til Bjögga og Ástu. Renata og Kiddi mættu líka með dúlluna sína og fengum við hamborgarahrygg sem smakkaðist ekkert smá vel og svo klikkaði nú ekki súkkulaðikakan sem Renata/Kiddi bökuðu og komu með í eftirrétt nammi namm takk alveg kærlega fyrir okkur.

Ég er nú reyndar búinn að vera eitthvað hálf slappur núna um helgina búinn að vera með beinverki og slæma verki í hálsinum :( ekki gaman það en ég á svo yndislega eiginkonu sem vekur mann á morgnana um helgar með Ameriskarpönnukökur og ískalda mjólk nammi namm ekki amalegt það að fá svona þjónustu "þú ert bestust love" 8)

Þetta er orðið gott hjá mér vonandi verður komandi vinnuvika æðisleg :)

peace out....


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 19:38:13 / runarb

UMMMM!!!

Þá er það komið á hreint!! Þýskarar orðnir meistarar í handbolta ekki kannski skrítið þar sem mekka handboltans er einmitt í Þýskalandi!! Karlinn horfði á sjálfsögðu á alla þessa leiki sem voru í 4 liða úrslitunum og fannst nú þessi leikur um meistarann vera einn sá daufasti af þeim! kannski af því að þjóðverjar voru bara einfaldlega bara miklu betri en pólverjarnir! en svo getur maður verði stoltur af baunverjum að ná bronsinu sem þeir eru nú reyndar orðnir áskrifendur af búnir að fá brons í síðustu 3 keppnum sem þeir hafa verið að taka þátt í svo þetta kom svo sem ekki á óvart.

Vinur minn hann Ketill droppaði yfir til okkar um helgina frá Köben og var þetta bara hin æðislegasta helgi með miklu skemmtana gildi :D Það var tekið vel á því á föstudagskvöldinu sem endaði með því að við vorum að rúlla heim um kl. hálf 7 um morguninn sem var bara snilld en laugardagurinn var svona meira í kómi og ráfu leika :S það var nú lítið gert svo sem þessa helgi annað en að djamma og njóta lífsins og fékk karlinn að sofa út og sá konan bara um strákinn mega snilld það enda bestasta eiginkona sem nokkur maður getur átt :D

Held að þetta sé bara orðið gott og vonandi að Strákarnir okkar nái að komast á ÓL leikana þrátt fyrir að hafa vermt 8 sætið á HM í þetta skiptið.

over and out....


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 07:46:15 / runarb

STÓR DAGUR Í DAG!!!!

Kominn tími á nýja færslu frá karlinum!! það er byrjað að hlýna aftur hérna í DK og var hitinn í morgun 7 gráður í plús sem er bara frábært, orðinn frekar þreyttur á þessum langa vetri hérna :) alveg heilir 3 dagar eða eitthvað álíka!

En núna er komið að því!! STÓRLEIKUR HM verður haldinn í kvöld í Hamborg þar sem Ísland mun sýna Dönum að okkur er alvara með að við byrjum á þeim til að stækka Ísland útá við bæði í viðskiptum og íþróttum þegar við sendum þá heim og komust í 4-liða úrslit :) (hva allt í lagi að vera smá bjartsýnn!) en í alvöru þá eigum við alveg að getað rúlla þessum Baunakörlum upp með góðum degi sem ég vona að sé í dag!

Yfir í annað.... þá lentum við því miður í því að skype-ið datt út hjá okkur og mundum við ekki lykilorðið :( svo við sóttum um annað notendanafn og var ég að hugsa hvort að þið sem voruð með okkur inní skype-inu hjá ykkur að breyta því en nýja skype-ið er fanneyogrunarindk mjög frumlegt að vanda :) sorry með þennan þvæling! Annars er allt gott að frétta af okkur hérna ég er á fullu í verkefnavinnu og stráksi loksins orðinn duglegur að blogg á ný á síðunni sinni sem og skólinn kominn á fullt hjá konunni aftur.

ÁFRAM ÍSLAND!!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
ST�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1054 dögum